Monday, October 4, 2010

Yndislegur haustdagur.

Veðrið bara hið besta. Hefur ekki rignt í nokkra daga. Hitinn yfir 20 stig. Og ekki von á næstu rigningu fyrr en á miðvikudaginn. Maður getur alveg sætt sig við svona tíð. Ó, já.
Helgin var afskaplega ljúf. Dúllað við að setja blóm í potta. Hreinsa illgresi og slá grasið. Þrífa útidyrahurðina og fínisera framan við húsið. Ná í graskerin og setja tekerti í þau. Notalegt að hafa kveikt á þeim á kvöldin. Já, það er að koma haustsvipur á tilveruna og það er víst kominn oktober. Alveg ótrúlegt.

Klaus er orðinn hress. Hann var heima í kvefi og slappleika á fimmtudaginn og föstudaginn. Afskaplega mikið veikur, hmhm. Karlmenn. Gott að þetta gekk fljót yfir.
Við Margrét skruppum í langan hjóltur og Margrét myndaði hitt og þetta í bænum. Hún er að vinna við verkefni fyrir skólann. Það var ekki amalegt að hjóla í blíðunni í gær.
Ég bakaði eplaköku og sauð eplagraut úr eplum, sem Frau Kühle gaf mér úr garði mömmu hennar. Og eldaði nautavefjar, eða nautarúllur í kvöldmat í gær.

Svo vorum við mæðgur að sortera yfir 120 bækur, sem komu á fö. með póstinum. Fór með nokkrar í gær í hjóltúrnum. Og gat losað mig við tvo stafla í dag áður en ég fór með fulla tösku í menntaskólann hérna. Á morgun fer ég með restina til Leiferde og læt 5. og 6. bekk fá þetta í fyrstu löngu frímínútunum. Mikil vinna og stressandi þegar ég sit uppi með 8 evrum of mikið. Hef líklega gleymt að panta eina bók, en finn hvergi hver hefur þá ekki fengið hana. Vona bara að sá hinn sami hringi í mig. Ég sem fer alltaf í gegn um allt... en er greinilega ekki nógu skipulögð!!!!

Artur kom í hádeginu frá Kína. Búinn að vera í tvo mánuði og Maja er heldur betur fegin að fá hann. Þau hringdu svo á bjöllunni og stóðu úti með fangið fullt af blómum, Eriku (lyngblómið) og umslagi með 200 evrum í. Ég var búin að segja Maju að ég tæki ekki neitt fyrir þetta. Það væri bara gaman að vera með Sonju, og engin vinna. En vissulega þykir mér vænt um að þau kunni að meta mig og er voða hrærð yfir þessu.
Ég hef oft hugsað um það að það sé mikið lán að hafa lært að telja aldrei eftir sér að gera öðrum greiða. Það er bara svo sjálfsagt að ekki þurfi að tala um það. Og þetta hafði mamma fyrir okkur og allar frænkurnar og fullt af fólki, sem ég hef getað litið upp til.
Hugsa sér hvað það hlýtur að vera hræðilegt að telja eftir sér að gera öðrum greiða! Hvað það gerir lífið erfitt.

Í dag fórum við í leiki með krökkunum í hádegisgæslunni. Þau léku atvinnuheiti með látbragði og voru rosalega hrifin. Það þarf ekki alltaf að hafa mikið fyrir börnum. Það er auðvelt að hrífa þau með sér. Haustborðið okkar vekur lukku og alltaf bætist við af kastaníum og könglum.

Svanhildur skrifar eitthvað um óánægju með skóla. Ætli þessi skifting hafi farið fram eftir þessu asnalega plani í sumar? Það var þá búið að skifta bekkjum, sem voru góðir, og setja krakka í bekk saman, sem ekki þekktust vel, hvað þá voru miklir vinir. Stundum hugsa ráðmenn ekki um börnin. Svo mikið er víst. Vona samt að Ástþór sé ánægður í skólanum og að allt gangi vel.

Við hringdum í Lillu, mömmu og Arnhildi um helgina og í Didda á skype. Það voru allir hressir og dugnaður í fólki. Ýmist farið í langa göngutúra eða búið til slátur. Og prjónað af kappi. Svona á það að vera.
Ég tók skúrinn í gegn. Það er mín dugnaðarsaga :) Það verður ekki smá sem ég þarf að ná upp þegar ég flyt heim. Kann ekkert að gera slátur eða búa til sultu. En get búið til eplaköku,hehehe.

Við Margrét ókum svo til Gifhorn. Síðasti tíminn hjá tannsérfræðingnum. Tekið mót af tönnunum við mikla ánægju-hahaha, eða þannig. Margrét kúgast jafn mikið og ég við svoleiðis ógeð. Gott að það er búíð! Svo fer hún til kvennsjúkdómalæknis á fö. Og þarf til Heilpraktíker á næstunni. Eins gott að það eru bara 4 dagar eftir í HAUSTFRÍ.

5 comments:

Kristín E. said...

kvitti kvitt.... bara sumar hjá ykkur :o) hér var reyndar yndislegt veður í dag, sennilega um 11-12 stiga hiti og sól og logn :o) ekki slæmt
Bið að heilsa Margréti og Klaus

Anonymous said...

takk takk :) bið að heilsa fjölskyldunni þinni líka :)
Margrét W.

Anonymous said...

ummm hvað það verður notalegt og gott fyrir ykkur að komast í haustfrí :) við þurfum að vera dugleg í þrjár vikur til viðbótar, þá komumst við líka í frí. Ætlum meira að segja að fara þá til Hannover, við þurfum endilega að stefna á notalegt spjall yfir kaffibolla og kökusneið :) (verðum fyrir norðan fyrstu helgina í nov..) Flottar haustmyndirnar þínar úr gæslunni!
Bestu kveðjur úr suðurhlutanum,
Aldís Björns

Anonymous said...

gaman að þú sért orðin svona dugleg að blogga móðir góð-alltaf gaman að geta fylgst með :) A.H.

Anonymous said...

bíð spennt eftir nýju bloggi ;)A.H.