Og enn skín sólin. Hún lét reyndar ekki sjá sig í gærmorgun, en kom svo fram eftir hádegið. Allir fullir af orku í blíðunni. Samt er ekki mikill hiti. Fer ekki upp fyrir 11 til 12 stig.
Við unnum í garðinum í fyrradag. Og svo tók ég baðið vel í gegn. Hreinsaði kalk í sturtunni. Þreif ofninn og þvoði gluggatjöldin og fleira svona spennandi. Margrét tók sitt herbergi í gegn. Klaus vann við skattaskýrsluna. Og kom henni í póstkassann í dag, jibbí. Búið að þrífa gólfin uppi og þurka af. Þetta er endalaust.
Við Margrét tókum hlé á stappinu í gær og fórum til Braunschweig. Ég hitti lækninn, sem á að gera þessa speglun. Ég verð svæfð og sef í eina tvo tíma. Ef eitthvað er finnst, skera þeir það burt straks. Fékk duftið, sem ég á að taka daginn áður. Blanda því í 2 lítra af vatni. Verð að vera á fljótandi í 24 tíma fyrir speglunina! Þvílíkt vesen. Og má ekki borða neitt í 3 daga nema auðmeltanlegan mat. Ekkert með trefjum. Enga ávexti, grænmeti, korn. Held að þá muni nú laglega stoppa í mér, mann o mann eins og þeir segja hérna. Læt ykkur vita hvernig fer--þetta er svo spennandi umræðuefni, híhíhí.
Margrét keypti afmælisgjöf handa mér, nei, ég veit ekki enn hvað :) Ég splæsti á mig tvennum buxum. Aðrar á 70 evrur og hinar á 60. Er enn með móral út af þessu. Fötin mín kosta nú sjaldan meira en 40 evrur. Og svo vantar mig bráðnauðsynlega skó. Veit ekki hvar þetta endar.
Við Margrét fundum báðar bækur, sem við féllum fyrir. Ég á flestar A.Christie bækurnar. En ekki allar þó. Tvær komnar í safnið til viðbótar.
Við tókum okkur gott hlé á Möwenpick kaffihúsinu. Risa himberjaterta, sem Margrét gat ekki klárað. Við báðum bara um box, sem okkur var gefið með bros á brá. Hún naut þess svo í gærkvöldi að klára tertubitann. Þessar kökur eru bara æði.
Í dag fór ég á fætur upp úr 8. Tók til niðri. Svo straujaði ég 14 skyrtur af honum Klaus mínum og 4 svuntur, sem foreldrafélagið á. Bjó til blómkálssúpu. Og þá lá leiðin út að vinna í sólinni. Plokkaði illgresi úr rifunum í gangstéttinni. Liggur við að maður þurfi flísatöng til að ná rótunum. Fullt af laufi og fíflarnir stórir og stæðilegir. Þeir liggja nú í valnum, en eru ótrúlega fljótir að ná sér, bölvaðir :)
Dalíurnar voru farnar að láta á sjá eftir frostanóttina. Gróf þær allar upp. Klippti ræturnar frá og sorteraði þær í dalla. Þær bíða í skúrnum eftir að ég hafi tíma til að koma þeim til hjónanna, sem sjá um þær yfir veturinn. En þar sem planið er að fara með lestinni til Hannover á morgun, kem ég því víst ekki straks í verk.
Maja og Artur við hliðina fóru í dag til Póllands. Ég bað þau að kaupa Elitesskex handa mér. Þau þekktu það ekki. En ætla að gá hvort þau finna það. Það væri æðislegt. Ég sé svo um póstinn og set ruslatunnuna út meðan þau eru í burtu. Á fö. fer ég aftur á kattavaktina. Sem sé bara nóg að gera.
Eins og vanalega er ekkert í þessu sjónvarpi. En bókin bíður á náttborðinu. Búin úr bjórglasinu og best að taka stefnuna á hlýtt og gott rúmið. Hafið það öll sem best. Hugsa til ykkar og sakna allra mikið. Afmæli Sigga hennar Kristínar í dag. Og Halldórs hennar Hildar frænku, svo og afmæli Möggu Pálu. Mikill merkisdagur. Vona að öll afmælisbörnin hafi það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Afmælisbarnið á þessu heimili þakka kveðjuna :o) áttum góðan dag í dag, fór með 2 súkkulaðikökur í vinnuna hans... þau eru orðin svo mörg að það dugar ekki 1 kaka heheheh og svo ætluðum við að hafa hangikjöt í kvöldmatinn, tengdó bauð okkur í mat (þar sem tengdapabbi á sama afmælisdag og einkasonurinn) og Siggi sendi þeim lærið þannig að við fengum Baldursheims-hangikjöt :D
kvitt kvitt, ég er voða dugleg sko að lesa allt ;)A.hhhhh
Sé þig fyrir mér með flísatöng í garðvinnunni - hahaha!!
Hér er sól en kalt, og smá snjókorn á bílunum í morgun, enda spáir hann kólnandi út vikuna. Erum á leið suður á föstudag, hitta VÖ sem við höfum nú ekki séð mikið af á þessu ári. Aldís í löngu helgarfríi svo hún kemur líka með, og líklega Þórgunnur líka. Komum aftur heim á sunnud.kvöld. Held að ég sé loks að losna við kvefið eða hvaða pest sem þetta var sem ég fékk fyrir meira en mánuði og er búið að hrella mig allt of lengi. Annars allt frekar rólegt, hef ekkert farið til mömmu og pabba í langan tíma en geri átak í því næstu daga :)
og núna þarf að koma meira blogg fyrir okkur dyggu aðdáendur þína móðir góð ;) ástarkveðjur Ahhhhh
sammála síðasta ræðumanni :)
Post a Comment