Veðrið er bara himneskt. Sól og blíða. Heiðskýr himinn í gær, sem olli næturfrosti. Bílarnir hvítir í morgun og spáð áfram svona veðri næstu 3 dagana. En spáðin hefur nú ekki verið rétt undanfarið svo við tökum þessu með varúð :) Mér heyrðist á mömmu að sama blíðan væri heima svo þetta er hið besta mál. Hún hringdi í gær til að segja mér hvað hún væri ánægð með afkomendurna. Arnhildur og Aldís komu og bjuggu til kleinur með henni. Hlustuðu svo á pabba spila og þetta var hin ánægjulegasta stund. Já, ég vona að þær frænkur komi sem oftast. Það veit enginn hversu lengi við höfum þau gömlu. Og eftir á er auðvelt að segja að maður hafi nú alltaf ætlað sér að koma en...Þær gæti líka komið í annan bakstur og lært fullt hjá ömmu gömlu. Já, þetta var ánægjuleg frétt. Áfram Arnhildur og Aldís!
Við þrjú komin í frí. Margrét var að læra helling í gær. Við Klaus klipptum niður jasminrunna við "tjörnina" okkar. Búin að binda helminginn saman. Það verður ekki komið að ná í greinarnar fyrr en í nóvember. En maður verður að nota góða veðrið til að vinna úti. Klaus klippti eitthvað af öðrum runnum. Ég hreinsaði vel beðið í kring um tjörnina. Svo var kaffihlé með marengetertu frá Sverge, Frödinge sé þökk:) Eftir sænskar kjötbollur í hádeginu, með kartöflumús og rauðkáli.
Doreen kíkti inn seint í gærkvöldi til að aðstoða Margréti með myndirnar. Hún var búin að vera í Hannover að versla. Skó og stívél og fleira skemmtilegt. Við Margrét ætlum til BS á þriðjudaginn í verslunarferð. Þar sem ég þarf hvort sem er í þetta viðtal um hálf tólf. Svo ætlar Susanne mágkona að aka mér í speglunina á miðvikudaginn 20., og heim aftur. Maður fær svæfingu, sem er sko eins gott. Og er vel vankaður allan daginn.
Infa-heimilissýningin, eða Hausfrauenmesse sem hún kallast hér almennt, hefst um næstu helgi. Við Margrét stefnum á að kíkja þangað og fara í jólasýningarhöllina. Með"kaffiogkökuhléi" og bara notalegheitum. Og svo gæti verið að við litum inn til Ramonu, sem flutti í vor til Hannover, og við erum ekki enn búin að sjá íbúðina. Og--kannski við förum í innkaupferð til Hannover á fimmtudaginn.--Svo það eru einhver plön. Maria vinkona Margrétar fór til Tyrklands með afa og ömmu. Hún verður allan tímann. Og Doreen er upptekin af nýja kærastanum.
Í gær fór Frau Kühle með vinkonu sinni í langan ökutúr. Kiki og fjölskylda voru heima hjá henni og verða þar til á morgun. Þau báðu mig að aka sér í verslanir, sem ég auðvitað gerði. Og að vanda átti ég ekki til orð yfir því hvað þau versluðu og hvernig þau ala upp stelpuna. Ekki alveg í mínum anda að gefa henni poka með jólanammi af því hún grenjaði út af því að hún fengi ekki stóran jólasvein úr súkkulaði. Og auðvitað fékk hún að borða allt úr pokanum þó að það væri að koma hádegismatur. Svo fékk hún Kinderei, og borðaði straks líka. Katrin keypti lika púsl á 4 evrur--. Þau eiga ekki neinn pening og það, sem fór í vagninn var aðallega sælgæti, kökur, sígarettur og púsl. Æ, ekki mitt mál. En samt ergir maður sig.
Margrét liggur í bólinu með Agatha Christie bók. Ekkert farið í bakaríið í dag enda of dýrt að gera það hvern dag. Svo það var bara hitað úr frystinum. Er að spá í kaupa mér kannski brauðvél fyrir peninginn frá Maju, eða góðan mixara á Kenwood vélina mína. Eitthvað, sem gerði daglega lífið betra. Þarf að baka, en er ekki komin í stuð til þess.:) Mín bíður líka hrikalegur stafli af þvotti til að strauja og öll gólf eru full af ryki. Ekki skortir verkefnin.
Innilegar hamingjuóskir til Möllu minnar, sem á afmæli í dag. Og til Þorgerðar heillaóskir í tilefni af afmæli Dags í gær. Afmælistörnin hafin, hehehe. Fleiri fylgja.
Aldís Björns segist ætla að koma til Hannover í nóvember og ég hlakka mikið til að hitta hana þar. Það er orðið langt síðan ég sá hana. Við búum í sama landi en fjarlægðin milli landshluta er mikil. Og ekki ódýrt að ferðast. Mér skilst svo að Margrét dóttir Sólu sé að flytja hingað. Það væri gaman að hittast allar þrjár.
Margrét er mikið að spá í au pair í Danmark eftir stúdentsprófið. Hana langar rosalega mikið að læra dönsku, sem henni finnst æðislegt tungumál. Ég er víst sú eina, sem á dætur, sem geta hugsað sér að tala og læra dönsku. Mér skilst að flestir í ættinni séu ekki of hrifnir af þessu tungumáli. Men jeg og mine dötre elsker den dejlige Danmark!!!!!!!!!
Með þessum fleygu orðum slæ ég botninn í þetta blogg í dag. Óska ykkur öllum yndislegrar helgi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Góða helgi frænka :o)
Ég er strax farin að hlakka til að heimsækja Margréti til Danmerkur ;)
Held að hún muni hafa mjög gaman af þessu og mamma happy. kveðja A.hhhhh
Takk fyrir afmæliskveðjuna!
Post a Comment