Það er bara verið að skora á mann að blogga meira! Ekki get ég valdið klappliðinu vonbrigðum, eða hvað:) Hér er rok-eða næstum því. Rigning og kalt. En samt kom sólin fram af og til og gladdi okkur. Smá öfund að frétta af alvöru snjó, en samt--við fengum eiginlega alveg nóg af honum í vetur. Allt í lagi meðan ekki er hálka.
Við mæðgur renndum til Gifhorn í læknisferð. Gekk allt vel. Margrét ók af alkunnum dugnaði. Við kíktum í búðir. Fundum tvær jólagjafir. Þeð gengur hægt, en hefst á endanum.
Svo fann ég ljósaseríu til að setja í blómapotta eða í beð úti. Það eru 5 tré, voða sæt. Ég keypti alveg eins í fyrra. Og vann það afrek að rugla saman spennibreytum, og setti allt of háan straum á grei trén, og allt brann yfir. Ég var svo svekkt. En nú get ég hlakkað til að njóta ljósanna þegar aðventan hefst. Sem er nú alveg að koma að. Tíminn er bara með æðiber í rassinum, eins og maðurinn sagði.
Við bökuðum svo heimilisfrið og bananamöffins er heim kom. Ekki nein veisla á morgun, en Frau Kühle og Herra Albrecht koma í morgunkaffi klukkan tíu. Eftir hádegið ætlum við til BS í bíó og kannski á kaffihús. Kannski í Ikea. Sjáum til.
Við erum búin að plan það að Arnhildur komi til okkar. Sennilega 15. nóvember. Og verði hér í tvo mánuði. Hún fær ekki tíma á þessari deild nema eitthvað smá áfram. Og við viljum endilega hafa hana -sem þræl auðvitað- í jólaundirbúningnum. Og á síðustu jólum Margrétar sem heimasætu í föðurhúsum. Kristín verður hjá pabba sínum og það ætti allt að ganga vel. Hann er heima á aðfangadag þetta árið. Já, það verður léttir fyrir Affí að vera með færra fólk í mat á aðfangadag, ekki satt systir góð! Allavega erum við himinsæl.
Erum himinsæl með niðurstöðuna úr ristilspegluninni líka. Þetta var mun minna mál en ég hélt. Var svæfð og þetta tók bara einar 20 mín. Hvíldi mig í aðrar 20 mín. Susanne mágkona ók mér fram og til baka. Þessi drykkur var svo sem ok. En það var mun verra að drekka þetta um morguninn. Þá var maginn bara fullur og mér var frekar óglatt. Ég var búin að vera með miklar þenkingar um lífið og tilveruna. Fannst svo vel geta komið til að mér yrði kippt út af þessari jörðu. Eiginlega væri ég búin að fá svo mörg tækifæri til að gera góða hluti og hefði ekki nýtt þau. Og hvort ég fengi nokkuð að reyna betur.... Já, maður er stundum ruglaður. En ég ætla að gera mitt besta til að vera góð og dugleg--og fá að taka lengur þátt í öllu þessu, sem fylgir okkar jarðnesku tilveru. Það er nú líka þannig að ekki fara alltaf þeir, sem minnst hafa áorkað. Maður skilur þetta ekki alltaf. En að minnsta kosti má maður vera sæll með að vera heilbrigður og eiga yndislagr dætur, góða fjölskyldu og elskulega eiginmann. Ver aekki skuldug og vera ekki voða heimsk. Þetta er nú bara tölvert, eða finnst ykkur það ekki?
Á morgun verð ég svo 55 ára. Flott tala og vonandi bíður mín flott ár. Fyrsta heillaóskin kom áðan í símtali. Nina hringdi í kvöld þar sem hún reiknaði með að ég fengi gesti á morgun. Sagði henni af ósk Margrétar um vinnu í Danmark. Og hún ætlar að hafa það bak við eyrað. Sagði líka að KD yrði fermd og mamma 75. Sem hún vissi. Mér finnst að við ættum að bjóða Ninu og Svend og Birthe í fermingu og afmæli. Þau eru hluti af okkar fjölskyldu og mér þætti æðislegt að sjá þau. Hvernig mamma ætlar að hafa með afmælið veit ég ekki. En það verður að vera allavega "bröns" eða álíka. Ekkert geðveikt. Veit jú að hún vill aldrei hafa vesen. En við hittumst nú ekki oft öll systkinin. Hvað finnst ykkur um Ninu / Birthe hugmyndina?
Fríið nú að verða búið. Einhverju kom maður í verk. Við Margrét fórum til Hannover á mánudaginn á Infa. Smá verslað og mikið skoðað. Keypti eina jólakúlu, sem er eins og ein gömul, sem ég fékk frá Estrid. Bara stærri. Ekki til neinar fleiri nema rispaðar. Á eftir settumst við niður á Starbucks, og fengum okkur kaffi og kanilsnúð. Það er alltaf hámark alls. Við erum nú ekki að fara á veitingahús eða eyða í föt og góss. Já-meðan ég man. Ég skilaði öðrum buxunum. Þær voru heldur þröngar i mittið. Svo ég get nú slappað af og hætt að vera með samviskubit, hahahaha.
Við erum enn að diskutera hvað ég eigi að gera við þessar 200 evrur, sem ég fékk fyrir pössunina. Susanne segir að ég eigi alls ekki að kaupa neitt, sem mig vanti heldur eyða þessu í eitthvað skemmtilegt. En mig langar mest í þarfa hluti! Mér finnst mest gaman að fá mixara og brauðvél, hitabrúsa eða pönnu.:) Veit að ég er spes!!! Langar reyndar mest í múminkönnu og disk!
Jæja. Þá styttist í að 22.10. renni upp hér í Þýskalandi. Best að koma sér í háttinn og sofa vel og dreyma vel á þessum síðustu og bestu tímum! Hafið það gott öll nær og fjær.
20 mín eftir!!!!!!!!!!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Elsku systir, til hamingju með daginn. Já ekki laust við að við séum líka komin í hálfgerðan jólafíling, eins og krakkarnir segja, því hér er alhvít jörð, en mildara veður en í gær. Gaman verður fyrir ykkur að hafa Arnhildi um jólin, og ég er ekkert fegin að hún verður ekki í jólamatnum þetta árið:) Þetta verður bara æðislegt hjá ykkur, verst að engin mun nenna að föndra fyrir jólin ef AH kemur út- eða þannig. Erum að fara suður upp úr hádegi og típískt að það skall á með hálku og snjó eftir tóma veðurblíðu, ég get þá alla vega haldið mér vakandi á leiðinni, skíthrædd við hálkuna :) Komum aftur á sunnud. kvöld. Allt of langt síðan við sáum VÖ, höfum aldrei komið í nýju íbúðina hans. Hlakka mikið til að sjá hann. VOnandi næst líka smá tími til að hitta ættingja Ella og mína, veit ekki hvort diddi verður heima, það kemur í ljós. Megi dagurinn verða ykkur tóm gleði og ánægja og enn og aftur til hamingju með stórafmælið. Hef ekkert sent þér í afmælisgjöf, verð að vinna það upp með jólagjöf þetta árið :)Bestu afmæliskveðjur, þín sys affí
Til hamingju með afmælið elsku Ádda! Flott tala 55!! Við á leiðinni norður í dag, fyrst Affí er að koma suður :) Vetrarfrí í skólum svo við komum til baka á mánudaginn. Hlakka til að slappa af í Steinahlíð og Norró. Húsið verður ekki tómt á meðan, Hildur verður heima, held að Þuríður Anna ætli að gista hjá henni, og svo er Maja vinkona að gista með 2 dætur sínar. Tangónámskeið í gærkvöldi, okkur fer stöðugt fram - hehe
Styttist í Parísarferðina með Helgu Margréti okkar samkvæmisdansara, nú já og jólin líka :) Kalt úti en fallegt veður, enginn snjór hér og skilst að hann nái ekki lengra en í Skagafjörðinn sem betur fer.
Eigðu frábæran dag og góða helgi!!
Innilega til hamingju með daginn. Vona að þú njótir dagsins vel og eigir góða hausthelgi fram undan með þínu ljúfa fólki. Og þú ert ekkert rugluð að vera að hugsa um lífið og tilveruna, það er gott að geta aðeins teiknað þetta upp stundum og skoða sig svolítið og aðra á uppbyggilegan hátt!
Frábært að Arnhildur sé svo á leiðinni til ykkar seinna í haust.
Bestu kveðjur, Svanhildur
Elsku Áslaug til hamingju með daginn. Skrifaði nokkrar línur á gamla netfangið þitt, vona að það komist til skila.
kveðja Hildur frænka
kvitti kvitt.... kíkti ekkert hér á afmælisdaginn þinn, sendi bara kveðju á facebook :þ Vona að ég nái að hitta elsku Arnhildi mína áður en hún fær að njóta lífsins með ykkur... væri alveg til í að sjá jólin í jólalandinu ykkar í Þýskalandi :o)
vá, smá blogg í gangi...haha ;) en ég las það allt saman, og já ég stóra dekurdýrið kem til ykkar fyrir jólin. Verð samt að minnast á það að Klaus fór í bakaríið á afmælinu þínu...er enn í sjokki-góðu sjokki sko ;) kveðja stóra dekurrófan þín Arnhildurrr
Post a Comment