Thursday, January 13, 2011

Framhald af bloggi í kvöld, 13.1.

Það er ekki hægt að missa af Despo eins og það er víst oft kallað heima:) Voða spennandi, og akkurat á kvöldmatartímanum. Passar flott að sitja við imbann og borða og horfa í einu. Nokkuð sem maður á víst ekki að gera. Og út af Despo varð hlé á blogginu. Nú held ég áfram.
Var að telja upp eitthvað af jólagjöfum. Við fengum nokkrar DVD, og erum búin að horfa á eitthvað af því. Ætlum að horfa á íslenska mynd á afmæli Margrétar, sem SÁ og SA sendu okkur. Í henni leikur þýskur leikari, sem er mjög vinsæll hérna. Hlökkum til. Annars eru þær systur önnum kafnar við að horfa á Veronica Mars, sem eru spennandi þættir.
Ég óska mér oftast heimilistækja í jólagjöf og fékk líka slíkt. Fyrir utan brauðvél og handþeytara fékk ég mixara til að setja ofan á Kenwood vélina mína. Loks aftur hægt að búa til skyrdrykki. Hollt og gott. Fékk handklæði frá Affí. Knallrauð og fara á gestaklósettið.
Það var meiningin að fara til Susanne systur Klaus á annan í jólum. En út af hálku hættum við við það. Þau Gregor komu við á leiðinni til Ramonu í Hannover daginn fyrir gamlársdag og færðu okkur gjafirnar. Og tóku sínar gjafir með og til stelpnanna frá okkur. Ég fékk ljósaseríu, sem hægt er að hengja upp sem hring eða taka í sundur og setja á borð. Og líka trefil. Stelpurnar fengu inneignarmiða í bíó. Og krem. Klaus bók og disk, með tónlist. Og ég fékk uppskriftabók, Jamie Oliver, æðisleg.
Við sendum Arnhildi með þeim í bæjarrölt í Hannover. Hún var ánægð að komast á útsölur og vera ein að dunda sér í bænum. Veit að enginn trúir því en hún settist inn á McDon :) Tók svo lestina og við Klaus sóttum hana á stöðina. Margrét nennti ekki, og var heima í rólegheitum.

Affí prjónaði geðveikislega flotta sokka handa Margréti. Allt of fína til að fara í:) Arnhildur fékk augnskugga frá henni. Þær systur fengu sturtusápu, minnir mig, frá Þórdísi. Fyrir utan DVD sem Margrét fékk. Svona líka í afmælisgjöf ef ég skildi rétt.
Einhverju er ég að gleyma því annað væri ekki ég!

Við vorum svo að koma frá mömmu Niklas, sem lærir hjá mér tvisvar í viku. Hún er klæðskeri. Ætlar að stytta þrennar gallabuxur af þeim systrum. Mun betra að troða buxnaskálmum ofan í vetrarstígvélin ef þær eru ekki með uppábrot. Við eru svo praktískar í okkur :)

Úti er hann að hvessa. Rigning í mest allan dag. En ég er bara fegin meðan hann er ekki með hálku. Það er ótrúlegt að heyra af veðrinu heima. Vonandi verður ekki slæmt í lok janúar þegar Arnhildur flýgur heim. Hún á flug 31.1. Lendir, minnir mig, seint. Svo er spurning um ferð norður. Ætti kannski að ath það fyrr en síðar. Hún flýgur frá Berlin. Á eftir að heyra í Kristínu Draheim, sem býr þar. Það gat verið að hægt væri að gista hjá henni. Etv. færum við allar þrjár ef veður er skikkanlegt og eyddum helgi í Berlin. Það er frí 31.1. og 1.2. út af einkunnagjöf. Sem sé 4 daga helgi hjá okkur.
Hjá Klaus er nóg að gera. Hann fer til Stuttgard á þriðjudaginn og þarf að leggja af stað klukkan 5 um morguninn! þessir þjóðverjar. Hvernig er hægt að vera starfshæfur eftir svona stutta nótt. Hann gistir eina nótt og kemur seint næsta kvöld.

Í vinnunni er hitt og þetta að gerast. Við fáum nýjan skólastjóra 2.2. Og aðstoðarskólastjórinn er búinn að sækja um stöðu í öðrum skóla. Fer líklega í sumar. Ég á eftir að redda fríi í júní og vildi barasta helst hætta þessu , en ekki veit ég hvar ég gæti fengið aðra vinnu, ómenntuð og reynslulaus. Það er vont að vera bundin við að komast bara í sumarfrístímanum. Tja, eitthvað verð ég að gera í málunum. Er líka mikið að hugsa um að losa mig við rauða bílinn, sem ég elska út af lífinu. En þegar Margrét er farin, þarf ég ekki á honum að halda. Get skipulagt innkaupin og farið á þeim bláa þegar Klaus er heima. Og ég vinn varla fyrir skattinum og bensíninu og tryggingunum. Svo það kæmi á móti því að hætta þessari vinnu. Og kannski gæti ég frekar fengið smá vinnu af og til heima og haft upp í það, sem ég missi af ef ég hætti þessu gæslu-stússi. Og verið með heimanám áfram. Ef maður gæti nú málað myndir og selt eins og pabbi og verið á grænni grein:)

Jæja. Aftur er maður farinn að láta sig dreyma. Það er nú besta mál:) Hlátur innan úr herbergi Margrétar. Mín bíður hins vegar bók eftir Jussi Adler Olsen, "Kvinden i buret". Á þýsku "Erbarmen" Mjög spennandi.
Ég vona að íslenski veturinn fari nú ekki illa í ykkur og að sólin fari að láta sjá sig oftar og lengur. Hafið það öll sem allra best og njótið þess að vera saman sem oftast.
Gleðilegt ár 2011 og takk fyrir allar góðar samverustundirnar.

5 comments:

Anonymous said...

Gleðilegt ár elsku frænka :o)
kv
Kristín E. að stelast í vinnunni hehe

Anonymous said...

Sendum okkar bestu afmæliskveðjur og knús til Margrétar! Til hamingju með skírteinið :)
Vonum að þið hafið það öll gott.

Svanhildur og co.

Anonymous said...

Gleðilegt ár öll sömul. Össi er að fara á morgun norður í Mývó með börnin 3, það er skipulagsdagur á leikskóla og skóla og hann lengir svo um föstudaginn og nær góðu fríi og þorrablóti í sveitinni. Ég verð hér ein, ætla að dekra við mig og njóta mín :)
kv. Malla

Anonymous said...

Vona að allt sé gott hjá ykkur. Njótið síðustu daganna saman áður en Arnhildur flýgur aftur heim, mikið verður gaman hjá þeim mæðgum að hittast aftur.
Baráttukveðjur í próflesturinn til Margrétar...hún rúllar þessu upp.
Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

...er búið að slökkva og læsa hér?!
Kv. Svanhildur