Mánudagskvöld, og sólin kom fram eftir kvöldmatinn, og við sluppum við eldingar og þrumur og fengum bara rigningu í nótt, trallalla. Það var gjörsamlega æðislegt veður um helgina. Ein 28 stig á sunnudaginn. Við grilluðum á laugardaginn eftir að ég var búin að fara í búðina, hreinsa beðin fram við húsið, og laga til inni. Var vel þreytt á eftir, og gott að fá sér glas af rauðvíni og slappa af með Margréti yfir mynd. Hún tók upp Shopaholic á hollensku stöðinni, sem við gátum bara notið í nokkra daga. Þá var allt svart og við yfir okkur sorgmæddar.
Svo bakaði ég líka straks um morguninn eplaköku madömunnar og pólska rabbarbaraköku, og gott að eiga eitthvað með kaffinu.
Í gær tók ég part af illgresinu, sem vex undir girðingunni okkar. Nóg eftir samt. Klaus setti niður nokkra steina í kant og sló grasið. Margrét naut þess að vera búin í prófum og las í spennandi bók. Þetta var sem sé hin besta helgi.
Í dag var sólalaust og nokkur vindur. Margrét fór með Maríu og hinum úr sögu-hópnum til BS,og þau grilluðu í garði, sem kennarinn á. Var fjör og hún var að koma heim, ilmandi af reyk af varðeldinum, sem kveikt var í á eftir. Komin í sturtu og svo er það bara beint í bælið.
Ég var að taka húsið í gegn. Ryksuga, þurka af, þvo gólf. Strauja og þrífa baðið. Fór til tannlæknis, sem tók gullfyllinguna, sem losnaði fyrir löngu. það var farið að verða glæsilegt undir henni, hmhm. Þufti að hreinsa allt út og smá sýking í holdinu. Svo ég er bara með gat-, fer aftur á fö. og þá setur hún fyllingu og krónuna aftur. Hefði líklega verið betra að fara straks.
Svo var ég að frétta af vinnu hjá Ástu á skipi, sem er veitingastaður. Og Solla vinkona með henni líka. Margréti fannst Ásta ekki taka geðveikt vel í að hitta hana í sumar--Ásta vissi ekki hvort hún myndi hitta Margréti, sjá bara til, , ætlaði á flakk um landið með vinkonum sínum, var ekki að bjóða Margréti með,--en svo var Ásta voða hissa að við héldum að hún vildi ekki neitt sérstaklega sjá frænku sína, auðvitað væri hún rosa spennt að hitta hana. Æ, við erum líklega viðkvæm, hérna svona úti á eyðieyjunni,híhíhí. Og svo fer Guðný á bóndabæ nálægt Blönduósi, með Jasmín, og má vera í allt sumar, skilst mér. Margrét niðurbrotin--enginn mæti með fána að taka á móti henni á vellinum. Það væri eftir því, sniff, sniff.
Það er reyndar skrítið að koma heim þetta sumarið. Arnhildur fer út, Ásta að vinna, Guðný úti í sveit, Aldís Dagmar á Höfn, VÖ í höfuðborgini, Maddý og Lilla í Garði, og Þuríður Anna í USA. Sigurður Ágúst líklega á Nesinu. Diddi og tveir synir í Mývatnssveit. Þórdís að vinna í Reykjavík. Kristín og Maddý ku ætla að fara til Vestfjarða.Það verður líklega ekki mikið, sem maður sér af fólkinu þar sem við höfum enga aðstöðu í Mývatnssveit. Já, sannarlega breyttir tímar. En það má taka rútur , og þvælast bara um landið og hitta alla:)
Veit ekki um plön Þorgerðar eða Möllu. Hvað þá Affíar.
Jæja, hafið það gott, og látið heyra í ykkur um sumarfrí og aldur og fyrri störf :) Góða nótt.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Þetta verður bara æðislegt fyrir þig, getur einbeitt þér að fáum en góðum ættingjum í einu hehe. Frábært að liðið er komið með vinnu, ferlega fúlt að vera atvinnulaus og þar með blankur. VÖ yfir sig ánægður með ferðina, veit ekki hvort þú fréttir að hann veiktist á heimleiðinni, var með hita þegar hann kom heim. Er samt allur að braggast, en hann var mjög feginn að við komum suður, gátum eitthvað snúist fyrir hann meðan hann var að jafna sig. Held að hann hafi líka verið eftir sig eftir ferðina, flugið var 17 tímar + stopp til að skipta þrisvar um vélar. Skoðaðu myndir hjá honum á fesbókinni, hann er búinn að setja nokkrar inn. Aldís var líka í helgarfríi og kom suður svo við hittumst öll. Kveðja í kotið, þín sys affí
Hæ hæ. Það verður gaman hjá ykkur að heimsækja "gamla landið"!!
Við verðum nú hér í bænum bara mest megnis það sem eftir er af júní þannig að við myndum kannski geta séð ykkur í kaffi og kökusneið áður en þið farið norður.
Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur
HæHæ.... ég veit ekkert hvar ég verð í sumar fyrir utan þessa viku sem við förum með mömmu og pabba í Hnífsdal :o) Þú bara flakkar á milli og nærð að hitta alla... þó ekki alla í einu enda væri það ekkert gaman :þ
Ég ætla allavegana alveg pottþétt að hitta ykkur og það vonandi alveg heilmikið :D
Sæl elskan.
Mikið væri gaman að sjá þig - ég verð í fríi hluta af júlí og eitthvað fram í ágúst. Kem hugsanlega norður - veit það ekki enn. Inga Stína var hér fyrir sunnan í síðustu viku, það var yndislegt að hitta hana. Vonast til að heyra frá þér sem fyrst.
Þín vinkona Anna Þ.
jæja mamma, á ekkert að skrifa neitt nýtt á bloggið??
kv. ein af dætrum þínum ... :)
Post a Comment