Í dag upplifðum við Margrét hvernig "Heilpraktíker" vinnur. Margrét fékk tíma hjá Cristine, sem er frá Braselíu. Hún er líka fulllærður venjulegur læknir. Þar sem Margrét er "privat"tryggð, ekki hjá aumingjunum eins og mamma gamla, borgar hennar sjúkrasamlag þetta án þess að mögla. En mig kostar svona heimsókn 70 evrur.( Klukkustund) Margréti er búið að vera smá óglatt undanfarið. Vissi ekki hvort það kæmi til af stressi. Nú kom í ljós að hún er með ofnæmi fyrir heslishnetum.
Og það er frekar leiðinlegt þar sem hún, sem er alls ekki nammigrís, elskar Nutella á brauðið. Og sama gildir um kókópuffs og slíkt. Hún á að sleppa öllu, sem inniheldur þetta í 6 vikur og eftir fríið fer hún aftur og þá finnur Christine út hvort þetta hafi batnað.
Hún fann út að skjaldkirtilinn væri ekki í lagi, en að það truflaði ekki mikið. Eins að hana vanti vitamin D, og járn. Sagði að hún væri með 80 % Kraft-minnir mig, og 20 % Ruhe, sem merkti að hún væri allt of óróleg. En hún væri ekki með neitt þunglyndi!!!!!!! Sem ég hélt nú líka. Frábært.
Rykmauraofnæmið væri heldur ekki slæmt. Ekki að bögga hana mikið.
Það var æðislegt að sjá hvernig hún rannsakaði þetta-(-Klaus glottir út í annað, og segir ekki mikið þegar við svermum fyrir þessu.) Margrét sat með járnhólk, tengdan við vél, í annarri hendi, og Christine rak tein í hina hendina og stillti sífellt tækið sitt, sem mældi þetta eins og verið væri að mæla battrí eða álíka.
Í lokin setti hún svo alls konar efni í litlum flöskum á tækið, og fann út hvaða "Magnet" hún þyrfti. Nú er daman komin með kort með segulrönd, sem hún á að láta liggja tvisvar á dag við bringuna og þetta á að hjálpa henni að vinna gegn ógleði og fleiru. Hljómar ótrúlega en Daniela, sem kynnti mig fyrir þesssari konu, er búin að fá mikla hjálp frá henni og hennar krakkar og margir fleiri.
Nú, hún Daniela frænka Margrétar, fór til svona konu í BS eftir að enginn gat fundið út hvað að væri. Hún fékk sífellt kvef og fannst hálsinn þrengjast og hún næði ekki andanum. Þessi kona fann út að Daniela þolir ekki hvítt hveit, að meltingin er í ólagi og ofnæmiskerfið. Hún fær pillur og hefur ekki fengið kvef síðan og er búin að leggja af í fyrsta sinn í mörg, mörg ár! Svo það er ekki furða þó við trúum á þetta.
Ég fékk tíma á föstudaginn og er mjög spennt. Já--þar fer nýr kjóll fyrir stúdentsafmælið. En ég er hvort sem er ekki búin að finna neitt. Er líka asnalegt að kaupa kjól, sem ég nota einu sinni og passa svo ekki í eftir árið. Nei, nei--vera bjartsýn. Komin í 77.7, --vonandi heldur þetta áfram í rétta átt.
Arnhildur var að skrifa um ofnæmi á snjáldurskinnu. Ætla að heyra í henni á morgun og frétta betur af því. Ég talin með óþol gegn öllum korntegundum þessa heims! En hef ekki breytt neinu í matarvenjum mínum. Spennt að heyra hvað Christine segir um það.
Átti gott samtal við eina mömmu út af erfiðum strák. Svo verður foreldrafundur fyrir foreldra þeirra, sem byrja í fyrsta bekk í ágúst. Maja við hliðina mætir þar. Og ég á að segja smá frá um starfið okkar í gæslunni.
Sólin er komin !!!! Spáð reyndar rigningu eftir helgi en-- er á meðan er. Eitthvað taut um 28 stig á sunnudaginn, sem þarf nú alls ekki að vera!
Hafið það gott, og yndislegt væri að fá smá kvitt. Manni finnst maður vera að tala við sjálfan sig:)
(Vona að Anna Þóra kvitta aftur! )
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
kvitti kvitt.... ég les alltaf :o)
Ég er líka dyggur lesandi ;) Vona bara að þetta virki sem þessi kona segir - þá er mér alveg sama hvernig hún kemst að þessum sannleik. kv. Malla
já ég held að ég flytji bara á háaloftið til ykkar :)örugglega minni hávaði og læti og privacy heldur en í þessari holu minni, nágrannarnir eru alveg að gera útaf við mig og heldurðu að það sé ekki fokking sandkassi klíndur upp við vegginn fyrir utan stofugluggann hjá mér-þannig að ef ég vil horfa út um stofugluggann þá þarf ég að horfa yfir hausana á liðinu sem býr uppi, voða nice...not!
vona að þetta virki fyrir litlu
systur mína :)
kveðja grumpy Arnhildur
kvitt, kvitt .... ég les líka reglulega ;-) Við hjónin vorum að koma heim frá Svíþjóð í gærkvöldi. C. var á ráðstefnu og ég fór með í ,,húsmæðraorlof!" Bara næs, börnin hjá tengdó á meðan(hvítasunnufrí í tvær vikur í skólum hér í Bæjaralandi) en nú tekur hversdagsleikinn aftur við.... Og þá er bara að vera duglegur, bjartsýnn og láta sér hlakka til sumarfrísins...
Bestu kveðjur og hafðu það gott heima á Ísalandinu góða... Aldís
Gott að þið eruð opnar fyrir óhefðbundnum lækningum. Þar er örugglega margt gott að finna þó því fylgi líka mikið af fúskurum sem selja vinnu sína dýrum dómum þó árangurinn sé takmarkaður. Þannig að maður verður alltaf að fylgjast vel með og með opnum huga hvort eitthvað breytist. Vonandi gengur þetta allt vel og það er farið að styttast í endurfundina. Bið a heilsa
Diddi
Post a Comment